Hátíðin


RIFF er alþjóðleg kvikmyndahátíð sem haldin er í Reykjavík í lok septembermánaðar ár hvert. Hátíðin er einn stærsti og fjölbreyttasti menningarviðburður á Íslandi og hana sækja tugþúsundir manna árlega til að njóta áhugaverðra kvikmynda, sérviðburða, málþinga, kvikmyndasmiðja og tónleika. RIFF vill rækta hið unga og ferska í kvikmyndagerð og er keppnisflokkur hátíðarinnar, Vitranir, því einskorðaður við efnilegt kvikmyndagerðarfólk þar sem aðalverðlaunin, Gyllti lundinn, er veittur leikstjóra fyrir sína fyrstu eða aðra mynd.
Hér neðar á síðunni má lesa allt um hina spennandi flokka RIFF.


Næsta hátíð verður haldin frá 22. september til 2. október 2011. Fylgist með hér á riff.is.

Vitranir
Í flokknum Vitranir tefla nýir leikstjórar fram sinni fyrstu eða annarri mynd og hefur Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík vakið mikla athygli fyrir þá sérstöðu að takmarka keppnisflokk aðalverðlaunanna við byrjendaverk kvikmyndagerðarfólks. Besta myndin hvert ár hlýtur aðalverðlaun hátíðarinnar, Gyllta lundann.

Kastljósið
Kastljósinu er varpað á myndir eftir kunna leikstjóra og myndir sem hafa sópað að sér verðlaunum á viðurkenndum alþjóðlegum hátíðum undanfarið. Þetta eru semsagt myndirnar sem fagfólki og áhorfendum hefur þótt hvað mest varið í á hverju ári.

Fyrir opnu hafi
Hér er teflt fram myndum sem notið hafa sérstakrar athygli á erlendum hátíðum, meistarastykki sem kvikmyndaaðdáendur gera sér far um að ekki að missa af. Í flokknum mátti í stuttu máli sagt finna verk margra færustu og virtustu kvikmyndagerðarmanna heims hverju sinni.

 

Heimildarmyndir
Sérstakur flokkur RIFF er tileinkaður þeirri ómótstæðilegu grósku sem er í gerð heimildamynda nú um stundir, enda er áhrifamáttur kvikmyndarinnar kannski aldrei meiri en í vel gerðri heimildamynd.

Nýr heimur
Mikil gróska er í gerð kvikmynda sem fjalla um umhverfismál með einum eða öðrum hætti. RIFF hefur veitt þessum myndum athygli með sérstökum flokki síðan árið 2008, og veitt eru verðlaun fyrir bestu myndina.

 

 

Betri heimur
Aðstandendum RIFF þykir rétt og skylt að bjóða upp á sérstakan flokk þar sem mannréttindamál eru til umfjöllunar, enda gegna kvikmyndir mikilvægu hlutverki við að upplýsa um stöðu mannréttindamála í heiminum, og geta um leið lagt sitt af mörkum til að bæta heiminn.

 

Tónlistarmyndir
Reykjavík er þekkt fyrir fjörlegt tónlistarlíf og RIFF hefur leitast við að endurspegla það í dagskrá sinni undanfarin ár með sérstökum tónlistarmyndaflokki. Hann inniheldur myndir, heimildamyndir sem leiknar, sem með einhverjum hætti tengjast tónlist sérstaklega.

 

 

Í brennidepli

Árlega hampar RIFF verkum vel valins leikstjóra sem á að baki langan og gæfuríkan feril og kvikmyndir sem mörkuðu á einhvern hátt tímamót þegar þær komu fyrir sjónir almennings. Hér gefst kostur á að sjá gömul meistaraverk sem ekki hafa ratað á hvíta tjaldið í áratugi.

 

 

Upprennandi meistari

Í þessum flokki er leitast við að vekja sérstaka athygli á einum ungum og upprennandi leikstjóra sem skarað hefur fram úr á undanförnum arum og þykir líklegur til að móta kvikmyndalandslag komandi ára.

 


Sjónarrönd

Á hverju ári beinir RIFF sjónum að kvikmyndagerð einhverra tveggja landa með því að setja saman flokk glænýrra mynda frá viðkomandi löndum. Þannig gefst gestum RIFF að kynna sér strauma og stefnur í kvikmyndagerð víða um heim.

 

 

Miðnæturbíó

Aðalmarkmið miðnæturdagskrárinnar er að gera tilraun til að varpa ljósi á dekkri hliðar kvikmyndaheimsins, með því að sýna ýmislegt skrýtið og skuggalegt, B-myndir sem bragð er af og kvikmyndir sem hafa á einn eða annan hátt orðið að költfyrirbæri.

 

 

Myndir og matur

Matur og myndir er flokkur mynda um mat er unninn í samstarfi við samtök áhugafólks um mat og umhverfisvernd sem nefnast Slow Food. Í flokknum er að finna kvikmyndir sem hverfast á einn eða annan hátt um mat og í tengslum við flokkinn er jafnan boðið upp á ýmsar matartengdar uppákomur.

 

 

Barna- og unglingamyndir

RIFF leitast við að bjóða upp á vandaðar og áhugaverðar kvikmyndir fyrir alla aldurshópa og unga fólkið er þar ekki undanskilið. Meðfram flokknum stendur hátíðin fyrir hreyfimyndasmiðju fyrir leikskóla og stuttmyndasmiðju fyrir grunnskóla.


Ísland í brennidepli

Svo sem vera ber er RIFF skurðpunktur íslenskrar og erlendrar kvikmyndalistar. Hátíðin hefur alltaf lagt sérstaka áherslu á Ísland í dagskrá sinni, með því að sýna fjölmargar myndir, nýjar sem gamlar, stuttmyndir, heimildamyndir og kvikmyndir í fullri lengd gerðar af íslensku kvikmyndagerðarfólki.



Sign up for our newsletter












Samstarfsaðilar:


/media/w200/6b285461da7e2bd0.png
/media/w200/ba539ba79631a079.jpg
/media/w200/34e62c364654d89f.png
/media/w200/18477d4a9f633ed.png
/media/w200/17f493746e20fe7d.png
/media/w200/4717f7ec7c31443.png
/media/w100/eae257cc4b4078b2.gif
/media/w100/e7ef44bca39259f5.png
/media/w100/6c46fa595e85811.gif
/media/w100/4cd1e2496643e64.jpg
/media/w100/afb342a6608e17.jpg
/media/w100/907c28a420ed6b2e.gif
/media/w100/cd5df2cfff2ff9f.png
/media/w100/7c17ef6b8a556a73.jpg
/media/w100/1679c418281c9673.png
/media/w100/16c847aa790d5f8.png
/media/w100/51472c12822f1352.png
/media/w100/6360e1c94cca2410.jpg
/media/w100/e29c28125e573167.gif
/media/w100/2cc55c843deea9ae.png
/media/w100/9e795186d898f58.png
/media/w100/a1fe26c1d1572685.png
/media/w100/f1783999d6ed9d8.png
/media/w100/63b9b843aea67a29.png
/media/w100/882484ea5719307d.png
/media/w100/1092fcff5a795e2.png
/media/w100/f1eea32dbd38a7b5.png
/media/w100/7dd749e3e330ccd3.png
/media/w100/dd375a438464c6d4.png
/media/w100/f278d66c74344784.jpg
/media/w100/a3a9c86bc01692e1.jpg
/media/w100/d133fe5ef5b5b66d.jpg
/media/w100/0be2bda4735a815.png
/media/w100/7f85cd32b7e7c81c.jpg
/media/w100/9724483a1e43126b.jpg
/media/w100/f5db92e98bfa9683.jpg
/media/w100/2919e5e4ec242bf.gif

Do you want to visit Reykjavík?

We have all the information you need to book your trip.