Béla Tarr

Heiðursverðlaun RIFF: Béla Tarr

Menningarrýnirinn Susan Sontag sagðist myndu vilja sjá meistarastykki Béla Tarrs Satantango árlega – allar sjö klukkustundirnar – og taldi myndir hans til þeirra verka sem framtíð kvikmyndalistarinnar gæti reitt sig á fyrir „hetjulegt andóf gegn viðteknum venjum.“ Strax í upphafi varð Tarr að næstum goðsagnakenndri fígúru, dáður af kvikmyndanördum en lítt þekktur í öðrum hópum. Á 21. öldinni hefur orðspor hans vaxið hratt og náð víða. Bandaríski leikstjórinn Gus van Sant var djúpt snortinn af verkum hans og Tarr er nú í hugum margra hluti af hreyfingu í kvikmyndasögunni sem nær m.a. aftur til Tarkovskys.



Tarr gerði sína fyrstu mynd 22 ára að aldri. Elstu verk hans fjalla um líf fátækra Ungverja í stíl sem er látlaus og minnir mjög á heimildarmyndir. Sjónrænt séð hefur stíll Tarr þróast mjög svo myndir hans eru nú engum líkar. Flókið ferðalag myndavélarinnar um herbergið er skipulagt af mikilli nákvæmni og gullfalleg svart/hvít skotin eru oft margar mínútur á lengd. Áhorfandinn skynjar kvikmyndatíma á nýjan hátt sem fær ýmsar tilvistarlegar spurningar til að skjóta upp kollinum. Þótt rýnar greini oft pólitíska merkingu í myndum Tarrs vill hann sjálfur meina að umfjöllunarefnin séu „kosmísk“ og eigi lítið skylt við dæmisögur, heldur séu fremur um ákveðinn stað, tíma, og ekki síður um sjálfa nærveru persónanna.



Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík er það mikill heiður að bjóða Béla Tarr velkominn á hátíðina sem heiðursgest RIFF 2011. Að þessu tilefni verða þrjár mynda hans sýndar á hátíðinni.


Sign up for our newsletter












Samstarfsaðilar:


/media/w200/6b285461da7e2bd0.png
/media/w200/ba539ba79631a079.jpg
/media/w200/34e62c364654d89f.png
/media/w200/18477d4a9f633ed.png
/media/w200/17f493746e20fe7d.png
/media/w200/4717f7ec7c31443.png
/media/w100/eae257cc4b4078b2.gif
/media/w100/e7ef44bca39259f5.png
/media/w100/6c46fa595e85811.gif
/media/w100/4cd1e2496643e64.jpg
/media/w100/afb342a6608e17.jpg
/media/w100/907c28a420ed6b2e.gif
/media/w100/cd5df2cfff2ff9f.png
/media/w100/7c17ef6b8a556a73.jpg
/media/w100/1679c418281c9673.png
/media/w100/16c847aa790d5f8.png
/media/w100/51472c12822f1352.png
/media/w100/6360e1c94cca2410.jpg
/media/w100/e29c28125e573167.gif
/media/w100/2cc55c843deea9ae.png
/media/w100/9e795186d898f58.png
/media/w100/a1fe26c1d1572685.png
/media/w100/f1783999d6ed9d8.png
/media/w100/63b9b843aea67a29.png
/media/w100/882484ea5719307d.png
/media/w100/1092fcff5a795e2.png
/media/w100/f1eea32dbd38a7b5.png
/media/w100/7dd749e3e330ccd3.png
/media/w100/dd375a438464c6d4.png
/media/w100/f278d66c74344784.jpg
/media/w100/a3a9c86bc01692e1.jpg
/media/w100/d133fe5ef5b5b66d.jpg
/media/w100/0be2bda4735a815.png
/media/w100/7f85cd32b7e7c81c.jpg
/media/w100/9724483a1e43126b.jpg
/media/w100/f5db92e98bfa9683.jpg
/media/w100/2919e5e4ec242bf.gif

Do you want to visit Reykjavík?

We have all the information you need to book your trip.