RIFF fréttir

24.1.2012

RIFF 2012 - Opnað fyrir innsendingu mynda í febrúar

Opnað verður fyrir innsendingu mynda fyrir RIFF 2012 í lok febrúar. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag innsendingar verða settar hér á vefsíðuna þegar nær dregur.
23.1.2012

Óskarinn 2012 - Besta erlenda myndin: Þrjár af tilnefndum á RIFF 2011

Þrjár þeirra mynda sem tilnefndar eru til Óskarsverðlauna í ár sem besta erlenda kvikmyndin voru sýndar á RIFF 2011. Alls eru níu erlendar myndir tilnefndar í ár og var þriðjungurinn sýndur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í fyrra. Þetta eru "Superclásico" eftir danska leikstjórann Ole Christian Madsen,  "Pina" eftir þýska leikstjórann Wim Wenders og "A seperation" eftir íranska leikstjórann Asghar Farhadi. 
19.1.2012

Stjórnandi RIFF í aðaldómnefnd Gautaborgarhátíðarinnar

Hrönn Marinósdóttur, stjórnanda RIFF – Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, hefur verið boðið að taka sæti í aðaldómnefnd kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg, sem fram fer dagana 27. janúar til 6. febrúar.
14.12.2011

Gjafabréf á RIFF 2012 - Til sölu i öllum verslunum Eymundsson

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður nú til sölu gjafabréf á næstu RIFF-hátíð. Þetta er ódýr og góð gjöf fyrir allt kvikmyndaáhugafólk. Gjafabréfin eru til sölu í verslunum Eymundsson um allt land. 
6.10.2011

RIFF 2011 í erlendum fjölmiðlum

Aðsókn á RIFF 2011 var með besta móti og erlendir blaðamenn eru þar ekki undanskildir. Umfjallanir og viðtalsgreinar eru þegar teknar að birtast víða um heim og það gleður RIFF að sjá hversu jákvæðum orðum er farið um hátíðina. Leiðandi miðlar á heimsvísu eru þar ekki undanskildir.
6.10.2011

RIFF 2011 þakkar fyrir sig

Áttundu alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík lauk sunnudaginn 2.október. Um leið og skipuleggjendur hátíðarinnar vona að sem flestir hafi fundið kvikmyndir og sérviðburði við sitt hæfi þá viljum við þakka kærlega fyrir frábærar viðtökur. RIFF 2011 bætti aðsóknarmet síðasta árs um tæplega 2000 manns og heildaraðsókn hátíðarinnar er um 27.000 gestir.
2.10.2011

Verðlaunamyndir RIFF 2011

Smellið á meira til að lesa um verðlaunamyndir hátíðarinnar í ár.
30.9.2011

Lokadagur RIFF

Klikkið á meira til að sjá dagskrá dagsins
30.9.2011

RIFF í dag, laugardag

Smelltu á meira til að lesa um viðburði og sýningar.
30.9.2011

Sérviðburðir og sérstakar sýningar á RIFF föstudaginn 30. september

Smelltu á “Meira”!
29.9.2011

Undralandið kemur í kvöld

Kíktu á gjörning, taktu bossanova-swing, það er Undraland í kvöld . . .
29.9.2011

Sérviðburðir og sérstakar sýningar á RIFF fimmudaginn 29. september

Smelltu á “Meira”!

28.9.2011

Bollywood strandpartý aflýst

RIFF þykir miður að tilkynna að Bollywood strandpartý sem fyrirhugað var á föstudag fellur niður vegna veðurs.
28.9.2011

RIFF í dag – Miðvikudagur 28. september

Smelltu á "Meira" til að sjá hvað er um að vera í dag:
28.9.2011

Villta Vesturs Vitleysa í kvöld á Kaffibarnum

Óhefluð stemmning villta vestursins eins og við þekkjum hana úr kúrekamyndunum verður í heiðri höfð á árlegri spurningakeppni kvikmyndahátíðar á Kaffibarnum í kvöld.
27.9.2011

Hvað er um að vera á RIFF í dag, þriðjudaginn 27.sept.?

Smellið á "Meira" til að sá helstu viðburði og myndir dagsins.
26.9.2011

Heimabíó á RIFF - 27. september

Komdu og horfðu á bíó heima hjá: 
a) Hrafni Gunnlaugssyni
b) Ásgeiri Kolbeins
c) Hugleik og Úlfhildi Dagsbörnum

Þetta magnaða kvikmyndaáhugafólk ætlar að sýna uppáhalds ræmuna sína og þér er boðið..... heim í stofu til þeirra!

26.9.2011

Myndir sýndar saman á RIFF 2011

Við viljum vekja athygli á því að sumar af myndum hátíðarinnar eru sýndar saman í ár, sjá lista með því að smella á "Meira":
25.9.2011

Come To Harm valin besta stuttmyndin á RIFF 2011 - Lone Scherfig afhent Heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listræna sýn

Íslenska stuttmyndin Come To Harm (Skaði) eftir Börk Sigþórsson var valin besta stuttmyndin á RIFF 2011, en þetta er í fyrsta skipti sem verðlaunin eru veitt. Þá voru "Heiðursverðlaun RIFF 2011 fyrir framúrskarandi listræna sýn" veitt við sama tilefni. Það var danska kvikmyndagerðarkonan Lone Scherfig sem hlaut þau í ár, og voru verðlaunin afhent af frú Vigdísi Finnbogadóttur.
25.9.2011

RIFF í kvöld - sunnudagur 25.september.

Smelltu á "Meira" til að sjá dagskrá kvöldsins á RIFF
24.9.2011

Laugardagskvöld á RIFF - hvað er um að vera?

Smelltu á "Meira" til að sjá það helsta sem er um að vera á hátíðinni í kvöld.
24.9.2011

Síminn - færir þér RIFF í símann!

Síminn, einn stoltra bakhjarla Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, býður upp á frábæra þjónustu fyrir kvikmyndaáhugafólk. Nú getur þú skoðað dagskrá RIFF í farsímanum!
23.9.2011

RIFF í dag - föstudagur 23. september

Smelltu á "Meira" til að sjá það helsta sem er um að vera á kvikmyndahátíð í dag.
22.9.2011

Gleðilega hátíð!

Þá er komið að því og fyrsti í hátíð er runninn upp! Af nógu er að taka í myndavali dagsins, en á forsíðu síðunnar má sjá heildarlista mynda.
22.9.2011

Komdu á RIFF í Bíó Paradís!

Annað árið í röð sýnir Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík myndir í í hinu dásamlega kvikmyndahúsi Bíó Paradís við Hverfisgötu. Þá verður veitingasala bíósins opin frá kl. 11:30 alla daga meðan á hátíð stendur. Handhafar RIFF-hátíðarpassa fá sérstakan afslátt og þá má ekki gleyma "Happy Hour" milli kl. 17 og 19 alla daga hátíðarinnar.
15.9.2011

Miðasala og upplýsingamiðstöð RIFF er opin!

Miða- og upplýsingamiðstöð RIFF hefur opnað. Sem fyrr verður hún staðsett á efstu hæð í Eymundsson, Austurstræti. Upplýsingamiðstöðin er opin frá 12-19 alla daga.
Athugið að miða á allar sýningar má kaupa í öllum kvikmyndahúsum RIFF 2011: Bíó Paradís, Háskólabíó, Norræna húsinu og Iðnó.
14.9.2011

Opnunarmynd RIFF 2011: Inni með Sigur Rós

Tónlistarmyndin "Inni" með Sigur Rós verður opnunarmynd Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, eða RIFF, í ár.  Um Norðurlandafrumsýningu verður að ræða á opnunarkvöldi RIFF fimmtudaginn 22. september en myndin hefur aðeins verið sýnd áður á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrir fáeinum vikum, þar sem hún hlaut glimrandi viðtökur.
13.9.2011

Heimabíó á RIFF með góðum gestgjöfum

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur ávallt lagt áherslu á óhefðbundnar bíósýningar í bland við sýningar í kvikmyndahúsum. Meðal þeirra viðburða sem fara fram fjarri myrkuðum bíósölum er heimabíóið, þar sem valinkunnir Íslendingar bjóða gestum RIFF heim til sín í Heimabíó og smella þar eigin uppáhaldsmynd í tækið. Popp og kók verður í boði á svæðinu fyrir gesti og ósvikin heimabíóstemmning!
13.9.2011

RIFF og DHL undirrita samstarfssamkomulag

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík og DHL á Íslandi hafa undirritað samkomulag um að DHL verði “opinber flutningsaðili” hátíðarinnar næstu þrjú árin.

12.9.2011

RIFF kynnir keppnisflokkinn Vitranir 2011

Keppnisflokkur RIFF, Vitranir, teflir fram 12 nýjum myndum, sem allar eiga það sammerkt að vera ferskar myndir ungra kvikmyndagerðarmanna. Einungis fyrsta eða önnur mynd leikstjóra komast í keppnisflokk RIFF. Í ár ber svo við að í fyrsta skipti er íslensk mynd í keppninni og úrvalið er sérdeilis girnilegt.
9.9.2011

Arabískt vor á RIFF

Alda byltinga hefur farið um Mið-Austurlönd það sem af er þessu ári og sér ekki fyrir endann á þeirri atburðarrás. Til að reyna að varpa einhverju ljósi á tíðaranda og menningu landanna í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum mun RIFF bjóða upp á sérstakan flokk með myndum frá umræddum heimshluta. Myndirnar sem sýndar verða eru Babylon, No More Fear og 18 Dagar.

8.9.2011

Béla Tarr hlýtur heiðursverðlaun RIFF fyrir ævistarf í þágu kvikmynda

Heiðursverðlaun RIFF 2011 “ævistarf í þágu kvikmyndalistarinnar” (RIFF Honorary Award for Lifetime Achievement) hlýtur ungverski leikstjórinn Béla Tarr. Þrjár af myndum Tarr verða sýndar á hátiðinni, þar á meðal hans síðasta mynd, Hesturinn í Tórínó (2011), en Tarr lýsti því nýlega yfir að hann væri hættur kvikmyndagerð.

6.9.2011

Lone Scherfig er heiðursgestur á RIFF 2011

Heiðursgestur á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2011 er danska kvikmyndagerðarkonan Lone Scherfig. Hún hlýtur Heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listræna sýn. Verðlaun þessi verða veitt í nafni Frú Vigdísar Finnbogadóttur og mun afhending þeirra verða árlegur viðburður á RIFF héðan í frá.

6.9.2011

Kvikmyndatónleikar RIFF 2011: Skúli Sverrisson og Sóley

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður jafnan til kvikmyndatónleika meðan á hátíð stendur, og hafa ýmsir af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar leikið lifandi tónlist meðan á sýningu kvikmyndar stendur. Í ár mun Skúli Sverrisson taka slaginn í Fríkirkjunni og Sóley Stefánsdóttir, oft kennd við hljómsveitina Seabear, mun einnig koma fram.

5.9.2011

Vertu á varðbergi gagnvart RIFF mafíunni!

Við erum ekki þau einu í hátíðarskapi þessa dagana! Meðfylgjandi listi er samsettur af því besta sem miðbær Reykjavíkur hefur upp á að bjóða, en saman mynda þessir staðir RIFF mafíuna og bjóða gestum hátíðarinnar sérkjör þegar hátíðarpassi er sýndur.
1.9.2011

Bíó í iðrum jarðar

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur frá upphafi lagt metnað í að bjóða upp á áhugaverða sérviðburði meðfram kvikmyndasýningum í bíósölum. En með Bíói í iðrum jarðar er stigið skref í alveg nýja átt – og sú átt er “niður”.

30.8.2011

David Suzuki mætir á RIFF

Heimildarmyndin Force Of Nature: The David Suzuki Movie verður sýnd á RIFF 2011. Myndin er samantekt á ævi og hugmyndum kanadíska vísindamannsins og umhverfissinnans David Suzuki og er henni leikstýrt af Vestur-Íslendingnum Sturlu Gunnarssyni. Suzuki, sem er í fremstu röð vísindamanna á sínu sviði, heimsækir hátíðina af þessu tilefni.

26.8.2011

Spikfeitur tónlistarmyndaflokkur á RIFF í ár

Reykjavík er þekkt fyrir fjörlegt tónlistarlíf og hefur RIFF leitast við að endurspegla það í dagskrá sinni undanfarin ár með sérstökum tónlistarmyndaflokki.sem inniheldur myndir sem með einhverjum hætti tengjast tónlist sérstaklega. Hátíðin 2011 er þar engin undantekning, en nú hefur flokkurinn í heild verið tilkynntur og inniheldur hann átta spennandi tónlistarmyndir.
25.8.2011

Eldað í anda myndar

Undanfarin ár hefur verið hefð fyrir því að Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík bjóði ekki einungis upp á hið besta í kvikmyndum, heldur einnig til heljarinnar matarveislu. Það er flokkurinn „Matur og myndir“ sem sér um það að leggja upp í ferðalag með áhorfendum og bragðlaukum þeirra, en jafnan er boðið upp á sérviðburð í tengslum við sýningu myndar úr flokknum þar sem mynd er sýnd og í kjölfarið eru svo kræsingar framreiddar af meistarakokkum í anda myndarinnar.
23.8.2011

Kevin Smith og Red State á RIFF 2011

Aðalmarkmið miðnæturdagskrár RIFF er að varpa ljósi á dekkri hliðar kvikmyndaheimsins og skjóta áhorfendum skelk í bringu sé þess nokkur kostur. Ein myndanna sem sýndar verða í miðnæturdagskránni í ár er nýjasta mynd bandaríska leikstjórans Kevin Smith. Nefnist hún Red State og er um Norðurlandafrumsýningu að ræða.

22.8.2011

Let England Shake sýnd á RIFF 2011

Meðal myndanna sem sýndar verða í flokki tónlistarmynda á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2011 er Let England Shake. Myndin er í raun samansett úr 12 myndverkum sem hvert og eitt eiga við samsvarandi lag á samnefndri plötu ensku söngkonunnar PJ Harvey.
22.8.2011

Rúmenía í fókus á RIFF 2011

Á hverju ári beinir Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík sjónum sínum að ákveðnum löndum til að gefa gestum hátíðarinnar kost á að kynna sér kvikmyndagerð viðkomandi landa. Flokkurinn nefnist Sjónarrönd og í ár er athyglin á Rúmeníu.
16.8.2011

Gina Belafonte kemur á RIFF 2011

Leikkonan Gina Belafonte, dóttir goðsagnarinnar Harry Belafonte, hefur staðfest komu sína á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík. Kemur hún í tengslum við sýningu myndarinnar Sing Your Song en myndin fjallar einmitt um söngvarann, leikarann, “calypso-kónginn” og mannréttindafrömuðinn Harry Belafonte.

10.8.2011

James Marsh á RIFF 2011

Meðal gesta á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2011 verður breski leikstjórinn James Marsh. Verður af því tilefni sérstakur flokkur helgaður honum og myndum hans á hátíðinni í ár. Þar á meðal er hin víðfræga "Man On Wire".

8.8.2011

The Neverending Story í Sundbíó RIFF 2011

Sundbíó RIFF 2011 verður í meira lagi ævintýralegt því myndin í ár er engin önnur en The Neverending Story frá 1984. Vettvangurinn er ennfremur við hæfi - hin glæsilega innilaug Laugardalslaugar.
22.7.2011

Forsala miða er hafin!

Forsala aðgöngumiða á Reykjavík International Film Festival, sem verður haldin frá 22.september - 2.október í áttunda sinn, er hafin!

Í netsölunni okkar getur þú keypt hátíðarpassa eða afsláttarkort fyrir 8 myndir, en sala stakra miða hefst þegar hátíðin byrjar. Fyrstu kaupendurnir fá frían RIFF bol og tösku á meðan birgðir endast!

Þú getur nálgast miðasöluna með því að fylgja slóðinni http://www.riff.is/midasala/
15.7.2011

Ulrich Thomsen í dómnefnd RIFF 2011

Danski stórleikarinn Ulrich Thomsen mun taka sæti í hinni alþjóðlegu dómnefnd RIFF í ár.
4.7.2011

The Miner's Hymns á RIFF 2011

Dagskráin á RIFF 2011, sem fram fer dagana 22.september til 2. október er óðum að taka á sig mynd, og það er Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík mikil ánægja að tilkynna að myndin The Miner's Hymns eftir Bill Morrison verður sýnd á hátíðinni í haust. Okkar eigin Jóhann Jóhannsson semur tónlistina við myndina og hefur hlotið einróma lof fyrir.
21.6.2011

RIFF 2011 auglýsir eftir íslenskum myndum


Alþjóðleg kvikmyndahátíð auglýsir eftir íslenskum myndum! Ertu með?!
7.6.2011

Nú er gaman - RIFF velur úr hundruðum innsendinga!

Það er líf og fjör á dagskrárdeild Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík þessa dagana því innsendingum mynda fyrir RIFF 2011 bókstaflega rignir inn! Nú þegar eru á fjórða hundrað mynda komin í hús og því af nógu að taka. Kvikmyndagerðarfólk er minnt á að frestur til innsendinga er til 15.júlí nk.
2.5.2011

Giorgio Gosetti er nýr dagskrárstjóri RIFF

Það er Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík mikil ánægja að kynna Giorgio Gosetti, nýjan dagskrárstjóra Vitrana, keppnisflokks hátíðarinnar en hún fer fram í áttunda sinn dagana 22.september til 2. október. Hann tekur við af Grikkjanum Dimitri Eipides sem hefur gegnt stöðu dagskrárstjóra síðan 2005. Gosetti, sem er borinn og barnfæddur Feneyingur, á að baki langan feril í heimi kvikmynda og kvikmyndahátíða.

5.4.2011

RIFF hefur flutt sig um set

Eftir nokkur góð ár að Fríkirkjuvegi 1 hefur Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík flutt sig um set á nýjan stað að Tjarnargötu 12. Við höfum semsagt flutt okkur um set í miðborginni, úr gamla miðbæjarskólanum yfir í gömlu slökkvistöðina.

3.3.2011

Kveðja


Látinn er í Reykjavík Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, en hann var alla tíð mikill vinur og velunnari Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík.
16.2.2011

Stelpur, stuttmyndir og Edduverðlaunin 2011

Stuttmyndirnar þrjár sem eru tilnefndar til Edduverðlaunanna 2011 sem Stuttmynd ársins eiga það sammerkt að þær voru allar frumsýndar á RIFF 2010, og það sem meira er; leikstjórar þeirra allra eru konur.
6.2.2011

Judith Ehrlich snýr aftur til Íslands

Ein af mest sóttu og umtöluðustu myndunum á RIFF 2010 var heimildamyndin The Most Dangerous Man in America: Daniel Ellsberg and the Pentagon Papers eftir hina bandarísku Judith Ehrlich, en hún var tilnefnd á síðasta ári til Óskarsverðlaunanna sem Besta heimildarmyndin. Ehrlich kom til landsins sem gestur kvikmyndahátíðarinnar í tilefni af sýningu myndarinnar og var hin áhugasamasta um land og þjóð. Í janúar síðastliðnum kom Ehrlich svo aftur til Íslands til að taka upp hluta nýjustu myndar sinnar.

5.1.2011

Gleðilegt ár - RIFF frumsýndi 4 af 10 bestu myndum síðasta árs!


Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík óskar ykkur öllum gleðilegs nýs árs, með kærri þökk fyrir 2010 sem var frábært RIFF-ár með þéttri dagskrá og metaðsókn.

Þó það hafi verið á allra vitorði hversu margar úrvalsmyndir voru sýndar á RIFF 2010 þá fannst okkur óneitanlega gaman að sjá árslista kvikmyndagagnrýnenda Morgunblaðsins yfir tíu bestu myndir 2010. Í sem stystu máli voru 4 af þeim 10 myndum frumsýndar á RIFF 2010.
2.11.2010

Erlend umfjöllun

Að vanda mætti fjöldi erlendra blaðamanna á RIFF í ár og skrifuðu pistla og greinar um hátíðina fyrir fjölmiðla sína. Hér eru nokkrir tenglar.
26.10.2010

Leikstjórar tilnefndir til Norrænu kvikmyndaverðlaunanna 2010 - úrval eldri mynda sýnt

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) og Norræna húsið kynna með stolti úrval eldri mynda leikstjóranna fimm sem tilnefndir eru til Norrænu kvikmyndaverðlaunanna 2010. Hér er komin kjörin leið til að hita upp fyrir afhendinguna sem fram fer í Reykjavík á menningarhátíðinni Ting sem hefst fimmtudaginn 28.október. Sýnd verður ein af eldri myndum hvers leikstjóra sem tilnefndur er í ár og fara sýningarnar fram í Bíó Paradís, dagana 29.október til 4. nóvember. 

26.10.2010

Kort och gott | stutt- og heimildarmyndir í Norræna húsinu

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur frá upphafi beint kastljósi sínu til Norðurlandanna. Það er því viðeigandi að hátíðin bjóði upp á sérstaka dagskrá í tilefni Ting, norrænnar menningarhátíðar sem stendur yfir dagana 28.október til 7.nóvember í Reykjavík. Dagskrána má sjá með því að smella á "Meira".

6.10.2010

Takk fyrir frábæra hátíð - sjáumst 2011!

Þá er sjöundu Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík lokið. Óhætt er að segja að hátíðin hafi heppnast frábærlega - aldrei hafa fleiri myndir verið sýndar og aldrei hafa fleiri gestir sótt hátíðina. RIFF þakkar öllum þeim sem sóttu hátíðina í ár, sem og styrktaraðilum og velunnurum. Sjáumst á næstu hátíð, 22. september til 2. október árið 2011!
3.10.2010

Le Quattro Volte fékk Gyllta lundann

Verðlaunaafhending RIFF fór fram í gær. Hér koma niðurstöðurnar:

Gyllti lundinn – aðalverðlaun RIFF

Fjögur skipti (Le Quattro Volte) er sigurvegari RIFF í ár. Myndin segir frá gömlum hjarðmanni sem eyðir ævikvöldinu í friðsælu miðaldaþorpi í fjallshlíðum Kalabríu á Ítalíu þar sem hann gætir geita. Myndin er ljóðræn sýn á hringrás lífs og náttúru, og órjúfanlegar hefðir á tímalausum stað.

2.10.2010

Sunnudagur 3. október | dagskráin fyrir lokadag RIFF 2010

Dagskrá morgundagsins, sem jafnframt er lokadagur hátíðarinnar, liggur fyrir. Smellið á "meira" til að sjá hvað er í boði:
2.10.2010

Viltu spjalla við leikstjóra? Q&A um alla borg á RIFF í dag

Eitt af því sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík leggur mikið upp úr er að koma áhorfendum í samband við leikstjóra myndanna sem sýndar eru. Í dag er úr fjölmörgum slíkum tækifærum að velja í tengslum við sýningar á spennandi myndum. Smelltu á meira til að kynna þér úrvalið!
1.10.2010

Ómar og umhverfið á RIFF - sýning í Hvalaskoðunarskipinu Eldingu!

Í kvöld klukkan 20:30 verður sýning á myndinni "One of the Wonders of the World" og fer sýningin fram í hvalaskoðunarskipinu Eldingu. Aðgangur er ókeypis!
1.10.2010

Breytingar á dagskrá RIFF í dag | 1. okt.

Góðfúslega kynnið ykkur þær breytingar sem orðið hafa á dagskrá dagsins með því að smella á "Meira".
1.10.2010

Jim Jarmusch - masterklassi á RIFF í dag

Heiðursgestur hátíðarinnar, bandaríski leikstjórinn Jim Jarmusch, spjallar um heima og geima í hátíðarsal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Leikstjórinn Dagur Kári og gagnrýnandinn Harlan Jacobsson stýra umræðum. Masterklassinn hefst kl. 15:00.
30.9.2010

Frábærar franskar stuttmyndir á RIFF - Útúrdúr í kvöld kl.20:00

"Les Petites Formes" er heitið á flokki stuttra franskra hreyfimynda sem sýndar hafa verið á hátíð sem kallast Laterna Magica í Marseilles en hún er skipulögð af Fotokino. Kvikmyndahátíðin fagnar því frábæra framtaki sem Les Petites Formes er með því að sýna úrval bestu myndanna sem fengið hafa sess á Laterna Magica síðan 2006. Fyrsta sýning er í kvöld kl. 20:00 í Útúrdúr, Austurstræti 6. Þessu vilt þú ekki missa af!
30.9.2010

Noam Chomsky og fjölmiðlarnir: sýning og Q&A með leikstjóra

Fyrirlestur Noam Chomsky í beinni útsendingu á RIFF sló heldur betur í gegn og komust færri að en vildu. RIFF sýnir í kvöld hina margfrægu mynd "Fjöldaframleitt samþykki: Noam Chomsky og fjölmiðlarnir" frá 1992. Leikstjóri myndarinnar, Peter Wintonick, verður viðstaddur og tekur þátt í Q&A eftir sýningu myndarinnar. Sýningin hefst kl. 20:00 í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
30.9.2010

Breytingar á dagskrá RIFF í dag | 30. sept.

Eftirfarandi eru breytingar á dagskrá RIFF í dag - endilega kíkið á!
30.9.2010

Tvöföld sýning með Jim Jarmusch í dag - Q&A eftir sýninguna

Jim Jarmusch er heiðursgestur RIFF 2010 og í dag verður tvöföld sýning á myndum eftir hann - annars vegar hin goðsagnakennda Down By Law (1986) og svo nýjasta mynd hans, The Limits of Control (2009). Jim Jarmusch verður viðstaddur sýninguna og að henni lokinni tekur hann þátt í Q&A með áhorfendum. Sýningin á myndunum verður í Háskólabíó og hefst kl. 18:00.
30.9.2010

Pallborðsumræður um umhverfismál - Norræna húsið í dag

Þrátt fyrir Kaupmannahafnarfundinn eru umhverfisvandamál heimsins enn óleyst. Í tengslum við umhverfismyndaflokk RIFF taka nokkrir kvikmyndagerðarmenn og sérfræðingar þátt í umræðum, lýsa því sem þeir hafa séð og viðra hugmyndir um hugsanlegar lausnir. Pallborðsumræðurnar fara fram í Norræna húsinu kl. 16:15 í dag.
29.9.2010

Aukasýning - Hættulegasti maður Bandaríkjanna - Judith Ehrlich Q&A

Við minnum á að vegna mikillar athygli og aðsóknar hefur RIFF ákveðið að bæta við sýningu á heimildamynd Judith Ehrlich, The Most Dangerous Man in America: Daniel Ellsberg and the Pentagon Files. Leikstjórinn verður viðstödd sýninguna í kvöld og tekur þátt í Q&A á eftir. Sýningin fer fram í Bíó Paradís kl. 18:30.
29.9.2010

You Are Not I - Sara Driver viðstödd sýningu í kvöld


RIFF sýnir í kvöld myndina You Are Not I (1981) en Sara Driver leikstýrði þar frumraun sinni ásamt því að klippa myndina og skrifa handritið ásamt eiginmanni sínum, Jim Jarmusch. Sara verður viðstödd og segir frá myndinni fyrir sýninguna í kvöld í Háskólabíó kl. 22:00.
29.9.2010

Sérstök sýning á RIFF - Í ljósaskiptunum (Szürkület) eftir György Fehér - kynning með Benedek Fliegauf

RIFF kynnir með stolti sérstaka sýningu á myndinni Í ljósaskiptunum (Szürkület) frá 1990 eftir ungverska leikstjórann György Fehér, sem fram fer í kvöld í Háskólabíói kl. 20:00. Við sama tækifæri mun annar ungverskur leikstjóri, Benedek Fliegauf sem kynntur er sem Upprennandi meistari á RIFF 2010, segja frá myndinni og þeim áhrifum sem hún hafði á hann sem kvikmyndagerðarmann.
29.9.2010

Masterklassi á RIFF í dag - David Kwok frá kvikmyndahátíðinni í Tribeca

Alþjóðleg vinnustofa RIFF um óháða kvikmyndagerð heldur áfram. Fyrirlestur dagsins í dag fer fram í Þjóðminjasafninu kl. 16:00.
29.9.2010

Með hangandi hendi - Frumsýning á RIFF í kvöld.

Ragnar Bjarnason ætti að vera óþarfi að kynna enda einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar. Með hangandi hendi er ný mynd um feril þessa stórsöngvara og verður hún frumsýnd í Háskólabíói í kvöld kl. 20:00. Goðsögnin sjálf, Raggi Bjarna, tekur lagið á undan sýningunni og efnt verður til leikstjóraspjalls að sýningu lokinni.
29.9.2010

Bílabíó RIFF er í kvöld!

RIFF hefur undanfarin ár sýnt klassískar myndir í bílabíói og er hátíðin í ár engin undantekning. Það er John Waters smellurinn Cry-Baby með Johnny Depp sem prýðir hvíta tjaldið að þessu sinni.
29.9.2010

Breytingar á dagskrá RIFF í dag | 30. sept.

Ágætu hátíðargestir; góðfúslega smellið á "Meira" til að kynna ykkur fáeinar breytingar sem orðið hafa á dagskrá RIFF í dag, miðvikudaginn 29.september.
28.9.2010

Miðnæturmynd Vernon Chatman: Hinsta hold

Þessi magnaða mynd er í raun tilraunaverkefni sem teygir á mörkum hefðbundinnar kvikmyndagerðar. Hinsta hold er alls ekki ætluð börnum og verður aðeins sýnd einu sinni: kl 22:00 á barnum Faktorý, þriðjudagskvöldið 28. september.
28.9.2010

Masterklassi á RIFF - Athina Rachel Tsangari


Gríski leikstjórinn og framleiðandinn Athina Tsangari ræðir ýmis atriði sem koma upp við gerð skáldverka á hvíta tjaldinu og stjórnar umræðum í kjölfarið. Masterklassinn hefst kl. 16:00 í Þjóðminjasafninu.
28.9.2010

Vincent Moon með sýningu og spjall á RIFF í kvöld!

Franski kvikmyndagerðarmaðurinn Vincent Moon, sem hefur unnið með tónlistarmönnum á borð við R.E.M., Sufjan Stevens, Animal Collective, Tom Jones, Arcade Fire, Sigur Rós, Beirut, Grizzly Bear og Bon Iver, sýnir gestum RIFF sérstakt prógramm með úrvali mynda eftir sig á Kaffi Rósenberg í kvöld kl. 20:30. Einnig mun hann segja viðstöddum frá aðferðum sínum og hvernig hann nálgast viðfangsefni sitt, tónlistarmennina.
28.9.2010

Noam Chomsky með fyrirlestur í beinni á RIFF


Það er með miklu stolti sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík kynnir fyrirlestur með Noam Chomsky þar sem hann talar í beinni útsendingu á bíótjaldi frá heimabæ sínum, Cambridge í Massachusetts. Fyrirlesturinn verður sýndur í Háskólabíó og hefst kl.17:00.
27.9.2010

Franskar hreyfistuttmyndir á RIFF - 27. og 28. sept.

RIFF, í samvinnu við Alliance Française í Reykjavík og sendiráð Frakklands á Íslandi, býður upp á úrval stuttmynda (hreyfimynda) með stuðningi CulturesFrance. Myndirnar verða sýndar dagana 27. og 28. september kl. 20:00 í sal Nýlistasafnsins við Skúlagötu 28.
27.9.2010

Aukasýning - Hættulegasti maður Bandaríkjanna

Vegna gífurlegrar aðsóknar á heimildarmyndina Hættulegasti maður Bandaríkjanna: Daniel Ellsberg og Pentagon-skjölin verður aukasýningu bætt við miðvikudaginn 29.september. Aukasýningin fer fram í Bíó Paradís kl. 18:30. Við sama tækifæri mun leikstjóri myndarinnar, Judith Ehrlich, sitja fyrir svörum gesta að sýningu lokinni.
27.9.2010

Kría Brekkan - kvikmyndatónleikar í kvöld

Kría Brekkan flytur frumsamda tónlist undir kvikmyndinni The Fall of the House of Usher eftir Jean Epstein, en myndin er frá árinu 1928 og er byggð á sögu eftir Edgar Allan Poe.
24.9.2010

Karl Óskarsson situr fyrir svörum

Tékkneska stórmyndin Þrjár árstíðir í helvíti (Three Seasons In Hell) eftir Tomás Masín verður Norðurlanda-frumsýnd á RIFF laugardaginn 25. september. Myndin gerist í Prag árið 1947 og fjallar um 19 ára spjátrung sem strýkur að heiman til að njóta lífsins á tímum lystisemda, eyðslusemi og mikilla eftirvæntinga. 
20.9.2010

Fjölmargar íslenskar kvikmyndir á RIFF

RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, hefst þann 23. september næstkomandi. Hátíðin hefur alltaf lagt mikið upp úr þátttöku íslenskra kvikmyndagerðarmanna í dagskrá sinni, og í ár verða sýndar fjölmargar íslenskar stuttmyndir, heimildarmyndir og kvikmyndir í fullri lengd.

15.9.2010

Miðasalan hafin!

Miðasala á RIFF er hafin. Hátíðarpassi sem gildir á allar myndir á hátíðinni kostar 9.000 kr. Átta miða afsláttarkort kostar 7.000 kr., en fleiri en einn geta sameinast um slíkt kort. Stakur miði kostar 1.000 kr. Upplýsingamiðstöð og miðasala RIFF er í verslun Eymundsson í Austurstræti, en þar fer fram sala miða, afsláttarkorta og passa.
15.9.2010

Dagskrá RIFF liggur fyrir - um 140 myndir sýndar


RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, hefst eftir átta daga – hinn 23. september. Dagskrá hátíðarinnar liggur ljós fyrir, og má finna allar upplýsingar um hana í glæsilegu dagskrárriti sem fer í dreifingu á allra næstu dögum og hér á riff.is, en dagskrá hátíðarinnar verður aðgengileg á vefnum innan skamms.
8.9.2010

Noam Chomsky á RIFF

Það er með miklu stolti sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík kynnir mynd-fyrirlestur með Noam Chomsky í Sal 1 í Háskólabíói þriðjudaginn 28. september næstkomandi, frá kl. 17 til 19. 
7.9.2010

Meistaraverk fyrir opnu hafi

Nú er komið í ljós hvaða myndir verða í flokknum Fyrir opnu hafi (e. Open Seas) á RIFF í ár. Í flokknum eru nokkrar af bestu myndum sem gerðar hafa verið á undanförnum mánuðum.
2.9.2010

Keppnisflokkurinn klár

Nú er komið í ljós hvaða tólf myndir keppa um aðalverðlaun RIFF í ár. Keppnisflokkurinn nefnist Vitranir (e. New Visions) en í þeim flokki tefla nýir leikstjórar fram sinni fyrstu eða annarri mynd í keppni um að verða útnefndir Uppgötvun ársins.
31.8.2010

RIFF og Iceland Airwaves í samstarf

Tvær af stærstu listahátíðum landsins, RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, og tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hafa ákveðið að leiða saman hesta sína og efna til samstarfs á kvikmyndahátíðinni nú í ár.

Samstarfið felst í því að heimildarmyndin Where's The Snow? sem fjallar um tónlistarhátíðina verður heimsfrumsýnd á RIFF nú í haust, auk þess sem einhverjir þeirra listamanna sem koma fram á Airwaves munu einnig koma fram á frumsýningunni.

30.8.2010

Umhverfismyndir í öndvegi

Mikil gróska er í gerð kvikmynda sem fjalla um umhverfismál með einum eða öðrum hætti. Þriðja árið í röð veitir RIFF þessum myndum sérstaka athygli í flokki mynda sem kallast Nýr heimur. Sjö myndir verða í flokknum að þessu sinni og verða verðlaun veitt fyrir bestu myndina í flokknum. Flokkurinn er unninn í samvinnu við vefsíðuna nature.is.
30.8.2010

Raggi Bjarna á RIFF

Heimildarmynd Árna Sveinssonar, Með hangandi hendi, sem fjallar um hinn ástsæla söngvara Ragnar Bjarnason, verður heimsfrumsýnd á RIFF í ár. Þá mun Ragnar taka lagið við frumsýningu myndarinnar, en nákvæm tímasetning hennar verður auglýst þegar nær dregur.
24.8.2010

Framlengdur umsóknarfrestur í Kvikmyndasmiðjuna

Frestur til að sækja um Kvikmyndasmiðju RIFF hefur verið framlengdur til 1. september fyrir þá sem búa hérlendis. Ungt og efnilegt kvikmyndagerðarfólk ætti ekki að missa af þessu.....
20.8.2010

Jóhann Jóhannsson með stórtónleika í Hallgrímskirkju

Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík og 12 Tónum er það sannur heiður að kynna stórtónleika með Jóhanni Jóhannsyni, sem haldnir verða í Hallgrímskirkju föstudagskvöldið 1. október næstkomandi. Þetta verða fyrstu tónleikar Jóhanns á Íslandi í fjögur ár, en hann hefur verið að gera það mjög gott á erlendri grundu að undanförnu. Það er því ljóst að mikill fengur er að koma Jóhanns til Íslands.
16.8.2010

Heimildarmyndaflokkurinn staðfestur

Nú eru aðeins 40 dagar þangað til RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, skellur á með glæsilegri dagskrá en nokkru sinni fyrr. Endanleg dagskrá er enn í mótun og verður kynnt innan tíðar, en ákveðið hefur verið að taka forskot á sæluna og kynna strax nokkrar þeirra heimildarmynda sem sýndar verða á hátíðinni, en þær verða samtals um 30.
9.8.2010

Fleiri stórstjörnur á RIFF

Stuttmyndin Knowledgy eftir þær Hrefnu Hagalín og Kristínu Báru Haraldsdóttur verður frumsýnd á Íslandi á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík nú í haust. Um er að ræða einstaklega metnaðarfullt lokaverkefni úr Kvikmyndaskóla Íslands, en þær stöllur útskrifuðust þaðan í vor. Þær fengu hverja stjörnuna á fætur annarri til liðs við sig við gerð myndarinnar, en ber þar helstan að nefna bandaríska leikarann Leo Fitzpatrick sem fer með aðalhlutverkið.

9.8.2010

Flottur Frakki á RIFF

Nýverið fékkst staðfest að franski kvikmyndagerðarmðurinn Vincent Moon verði sérstakur gestur á RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem haldin verður dagana 23. september til 3. október næstkomandi. Moon er þekktastur fyrir sérstæðar tónleikaupptökur sínar, sem hann kallar Take Away Shows.


Sign up for our newsletter












Samstarfsaðilar:


/media/w200/6b285461da7e2bd0.png
/media/w200/ba539ba79631a079.jpg
/media/w200/34e62c364654d89f.png
/media/w200/18477d4a9f633ed.png
/media/w200/17f493746e20fe7d.png
/media/w200/4717f7ec7c31443.png
/media/w100/eae257cc4b4078b2.gif
/media/w100/e7ef44bca39259f5.png
/media/w100/6c46fa595e85811.gif
/media/w100/4cd1e2496643e64.jpg
/media/w100/afb342a6608e17.jpg
/media/w100/907c28a420ed6b2e.gif
/media/w100/cd5df2cfff2ff9f.png
/media/w100/7c17ef6b8a556a73.jpg
/media/w100/1679c418281c9673.png
/media/w100/16c847aa790d5f8.png
/media/w100/51472c12822f1352.png
/media/w100/6360e1c94cca2410.jpg
/media/w100/e29c28125e573167.gif
/media/w100/2cc55c843deea9ae.png
/media/w100/9e795186d898f58.png
/media/w100/a1fe26c1d1572685.png
/media/w100/f1783999d6ed9d8.png
/media/w100/63b9b843aea67a29.png
/media/w100/882484ea5719307d.png
/media/w100/1092fcff5a795e2.png
/media/w100/f1eea32dbd38a7b5.png
/media/w100/7dd749e3e330ccd3.png
/media/w100/dd375a438464c6d4.png
/media/w100/f278d66c74344784.jpg
/media/w100/a3a9c86bc01692e1.jpg
/media/w100/d133fe5ef5b5b66d.jpg
/media/w100/0be2bda4735a815.png
/media/w100/7f85cd32b7e7c81c.jpg
/media/w100/9724483a1e43126b.jpg
/media/w100/f5db92e98bfa9683.jpg
/media/w100/2919e5e4ec242bf.gif

Do you want to visit Reykjavík?

We have all the information you need to book your trip.