Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður nú til sölu gjafabréf á næstu RIFF-hátíð. Þetta er ódýr og góð gjöf fyrir allt kvikmyndaáhugafólk. Gjafabréfin eru til sölu í verslunum Eymundsson um allt land.
Þrennskonar gjafabréf eru til sölu;
Klippikort sem gildir á 8 kvikmyndasýningar á RIFF 2012 að eigin vali. Verð kr. 7.500
Hátíðarpassi sem veitir aðgang að öllum kvikmyndasýningum RIFF 2012. Verð kr. 9.200
VIP passi sem gildir á alla viðburði sem RIFF stendur fyrir á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni 2012. VIP-passinn gildir á allar kvikmyndasýningar og aðra sérviðburði, s.s. sundbíó, fyrirlestra og aðra viðburði sem haldnir eru undir merkjum RIFF. Verð kr. 25.000
Kortin fást í eftirtöldum verslunum Eymundsson:
Reykjavík:
Austurstræti 18
Álfabakka 14b, Mjódd
Kringlunni norður
Kringlunni suður
Skólavörðustíg 11
Smáralind
Strandgötu 31, Hafnarfirði
Dalbraut 1, Akranesi
Faxastíg 36, Vestmannaeyjum
Hafnarstræti 2, Ísafirði
Hafnarstræti 91-93, Akureyri
Sólvallagötu 2 Keflavík
Sjá nánar um gjafakortasöluna hér