Lesa grein

19.1.2012

Stjórnandi RIFF í aðaldómnefnd Gautaborgarhátíðarinnar

 Hrönn Marinósdóttur, stjórnanda RIFF – Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, hefur verið boðið að taka sæti í aðaldómnefnd kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg, sem fram fer dagana 27. janúar til 6. febrúar.

Gautaborgarhátíðin er tvímælalaust ein stærsta kvikmyndahátíðin á Norðurlöndum. Hrönn tekur sæti í dómnefnd sem veitir aðalverðlaun hátíðarinnar, „Dragon Awards“ eða Drekann en hann er veittur fyrir bestu kvikmynd Norðurlanda.

Auk Hrannar Marinósdóttur sitja í aðaldómnefnd þau Jessica Hausner, leikstjóri frá Austurríki en hún er jafnframt formaður dómnefndar, danski leikstjórinn Omar Shargawi, norski kvikmyndatökumaðurinn John Andreas Andersen, sænska leikkonan Sofia Helin og finnska leikkonan Linda Zilliacus.

Átta kvikmyndir keppa um Drekann á Gautaborgarhátíðinni og voru tvær þeirra sýndar á RIFF – Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í fyrra. Annars vegar „Sons of Norway“ eftir Jens Lien sem jafnframt var lokamynd RIFF 2011 og hins vegar mynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, „Á Annan veg“.
Að auki eru tilnefndar sem besta norræna myndin „Avalon“ eftir sænska leikstjórann Axel Petersén, „Kompani Orheim“ eftir norska leikstjórann Arild Andresen, „Flimmer“ eftir sænska leikstjórann Patrik Eklund, „10 timer til paradis“ eftir danska leikstjórann Mads Matthiesen, „Stars above“ eftir finnska leikstjórann Saara Cantell og „Pojkanten“ eftir sænska leikstjórann Ester Martin Bergsmark.

Drekinn verður afhentur laugardaginn 4. febrúar.

Tvær íslenskar kvikmyndir hafa hampað Drekanum á Gautaborgarhátíðum. Kvikmynd Dags Kára, „Nóialbínói“ hlaut verðlaunin árið 2003 og mynd Dags Kára „Voksne mennesker“ hlaut Drekann á Gautaborgarhátíðinni árið 2006.

Jessica Hausner frá Austurríki var í dómnefnd RIFF 2009. Hausner er fædd í Vín í Austurríki. Hún nam leikstjórn við Kvikmyndaakademíuna í Vínarborg. Stuttmynd hennar, Flora, vann Léopard de Demain verðlaunin á Locarno hátíðinni. Útskriftarmyndin hennar Interview vann til dómnefndarverðlauna á Cannes kvikmyndahátíðinni 1999. Myndir hennar Lovely Rita og Hotel voru valdar í flokkinn Un Certain Regard á Cannes hátíðinni. Þriðja kvikmynd Hausner, Lourdes var sýnd á RIFF 2009.

Níunda Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík verður haldin dagana 27. september til 7. október 2012.

Sign up for our newsletter

Samstarfsaðilar:

/media/w200/6b285461da7e2bd0.png
/media/w200/ba539ba79631a079.jpg
/media/w200/34e62c364654d89f.png
/media/w200/18477d4a9f633ed.png
/media/w200/17f493746e20fe7d.png
/media/w200/4717f7ec7c31443.png
/media/w100/eae257cc4b4078b2.gif
/media/w100/e7ef44bca39259f5.png
/media/w100/6c46fa595e85811.gif
/media/w100/4cd1e2496643e64.jpg
/media/w100/afb342a6608e17.jpg
/media/w100/907c28a420ed6b2e.gif
/media/w100/cd5df2cfff2ff9f.png
/media/w100/7c17ef6b8a556a73.jpg
/media/w100/1679c418281c9673.png
/media/w100/16c847aa790d5f8.png
/media/w100/51472c12822f1352.png
/media/w100/6360e1c94cca2410.jpg
/media/w100/e29c28125e573167.gif
/media/w100/2cc55c843deea9ae.png
/media/w100/9e795186d898f58.png
/media/w100/a1fe26c1d1572685.png
/media/w100/f1783999d6ed9d8.png
/media/w100/63b9b843aea67a29.png
/media/w100/882484ea5719307d.png
/media/w100/1092fcff5a795e2.png
/media/w100/f1eea32dbd38a7b5.png
/media/w100/7dd749e3e330ccd3.png
/media/w100/dd375a438464c6d4.png
/media/w100/f278d66c74344784.jpg
/media/w100/a3a9c86bc01692e1.jpg
/media/w100/d133fe5ef5b5b66d.jpg
/media/w100/0be2bda4735a815.png
/media/w100/7f85cd32b7e7c81c.jpg
/media/w100/9724483a1e43126b.jpg
/media/w100/f5db92e98bfa9683.jpg
/media/w100/2919e5e4ec242bf.gif

Do you want to visit Reykjavík?

We have all the information you need to book your trip.